Its our vitz that make us men

Nökkvinn í Reykjavík helvíti

13.04.2009 22:26:57 / nokkinn

hvað skal segja...

Hvernig er það, er einhver sem skoðar þetta ennþá?

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 21:43:18 / nokkinn

Athugun!!!!!

Já sællllllllar..... Haldiði ekki að kallinn sé bara á lífi hérna á vesturkantinum
i henni Reykjavík og farinn að arka menntaveginn enn á ný.
Sumarið fór bara í það að vinna og vinna og vinna endalaust norður á hjara veraldar
þar sem ekkert þrífst nema húsdýr og glæpamenn en ég ætla ekki að segja meir að sinni
því ég ætla að athuga hvort einhver les þetta ennþá... nenni ekki að vera með einhverja
speki hérna ef engin les þetta.... Þannig að ég hef sett 10 kommenta lágmark frá 10
einstaklingum fyrir klukkan 12 á miðnætti næstkomandi föstudag
til að hér verði áfram ritað... sæl að sinni...

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 16:37:41 / nokkinn

Reykjavík helvíti

Bloggandinn kom yfir mig eftir að hafa lesið grein http://visir.is/article/20080527/FRETTIR01/671459421
Nú er mér spurn, hvernig dettur þessum skítamiðli í hug að ég hafi einhverja samúð
með skítaóþolandi krakkavitleysingi frá RVK sem hefur ekkert við tíma sinn að gera
nema stela einhverjum molum í sjoppu og spreða tíma lögreglunnar.
Jájá hugsið þið bara eins og Lögreglan hafi eitthvað annað að gera. Það sannast bara
enn og aftur það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Reykvíkingar ná enn og aftur
að hneyksla samlanda sína með endalausu andskotans rugli og skætingi, er ekki hægt að
láta þessi börn fá eitthvað að gera, andskotans vitleysingaren jæja nenni ekki að ergja
mig meira á þessum pappakössum.

Það sem ber hæst er að ég er að fara heim á föstudaginn kemur!!!! Já þið sjáið rétt.
Bangsi hefur sett saman kammertsveit eða hvað þetta nú heitir og ætlar að baka handa
mér köku.

Nenni þessu hreinlega ekki lengur og nú fer ég að halda á vit ævintýranna fyrir austan.
Þetta er síðasta bloggið í bili og við sjáum til hvort ég nenni að setja eitthvað meira
hér framar... allavega að veriði sæl að sinni....





» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 20:13:32 / nokkinn

uppgjör

Jújú það er satt ritun helgarpóstsins er hafin. Helgin var ansi viðburðarík. Þetta byrjaði nú með nettu grilli og bjór á fimmtudaginn þar sem við Haffi höfðum farið vel í ríkið og Hagkaup með tekjur dósanna okkar.
Föstdagurinn var svo tekinn með trompi það var grillað og meistaralið mætt á svæðið Frostalingur, Ingimar og Gísli Sig mættir í öllu sínu veldi ásamt mun fleira fólki. Við Frosti stútuðum tveimur bjórum eða svo áður en haldið var í bæinn. Þar þótti okkur agalega sniðugt að elta mann sem var eins og diskókúla því hann var með svo mikið glymmer á sér og nudduðum við okkur endalaust upp við hann til að fá okkar skammt við mikla hrifningu hans. Einnig þótti okkur agalega sniðugt að tala við allar þær konur sem við hittum í bænum og knúsa þær og kyssa en fengum misjafnar undirtektir þó vorum við reyndar alveg teknir á eigin bragði því við sáum 2 illa FINE kellingar og gerðum við hosur okkar grænar við þær strax en þær sáu í gegnum okkur og gerðu það sama á móti og þá þótti okkur þetta bara ekkert fyndið og fundum upp á nýjum leik sem ég ætla nú ekki að fara nánar út í hér. Nú þegar klukkan var að slá í 6 þá skriðum við frændur hér heim og Frosta tókst með ótrúlegri lægni að leggja stofuna í eyði brussan sem hann er. Nú laugardagurinn rann upp og það var mikill gleðidagur Hafþór hafði nefnilega um nóttina þegar hann kom heim reynt að nauðga Frosta og var sjónin ekki falleg sem blasti við mér þegar ég skreið fram um morguninn.

Á laugardagskveldið ákváðum við frændur að kíkja á Players og fara á ball það var hin fínasta skemmtun og ber þar fyrst og helst að nefna að formaður eldri borgara félags ellismella hann Sigurður GAMLI Einar Guðjónsson mætti þar algerlega hreint búinn að brjóta allar útivistarreglur elliheimilisins og búinn að stela sér
ansi miklu spritti frá hjúkkunum á elliheimilinu. Nú þetta var svona smá texti um þetta allt en nú förum við yfir í punktabloggið.....

Mér skilst að helvítis ''MELURINN'' hann Bangsi sé búinn að ''HELGA'' sér ýmsa hluti...

Frosti og ég ættum trúlega að fara á snúruna eftir helgina...

Ingimar er ekki með þetta hann var bara að vinna verkfræðingurinn sem hann er...

Gísli Sigurðsson raðslummaði mig svo og sleikti um helgina að ég er enn með drukknunartilfinningu

Ég er ekki frá því að hann beri til mín tilfinningar...

Ég fékk líka minn skammt frá Frosta...

Andrés önd var alger gyðingur og djammaði ekkert með okkur um helgina...

Gamli er alveg með þetta að vanda...

Kolbrún Hólm á að sjálfssögðu að fara á snúruna...

Einnig vil ég minnast á það að ég á svarta brandarann um Bangsa en ekki hún...


En nenni ekki meir núna...

Spurning dagsins: Afhverju koma svona margir og skoða síðuna en kommenta ekki, ég fer að taka þetta inná mig og krefst ég þess að nú taki fólk við sér...


» 14 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 23:45:06 / nokkinn

ablabla

Ég man þá tíð þegar ég hljóp um á rassgatinu einu fata í sveitinni hér í gamla daga en það er því miður ekki hægt hér í borg verðbólgunnar.
Nú í fréttum er það helst að skólinn er að drekkja mér í vinnu ásamt því að formaður eldri borgara félags flatlendinga og nærdæla hann gamli
er að gera hvern mann vitlausan svo ég neyðist til að skrifa eitthvað smá.
Hér í bænum er allt við það sama krónan er á uppleið ásamt hlutabréfunum og C réttindamenn eru að tefja mig í umferðinni, andskotans
vörubílstjórar segi ég nú bara.

Nú að öðru ég er búinn að vera dálítið í því að gera fólk vitlaust undanfarna daga, á föstudaginn gerði ég unga snót brjálaða með 1 setningu
geri aðrir betur svo áðan skaut ég inn kommenti á Seyðfirðing (já sem er frá sama bæ og Bangsabirna) og þar gerði ég allt vitlaust.
Ég ætla nú samt að segja það Bangsabirna það er nú bara ekki eðlilegt hvað fólk frá jafn miklu krummaskuði og Seyðisfirði getur vælt,
það er allt ómögulegt og þessi vegur er bara ekki mönnum bjóðandi og blablabla, þetta er farið að verða eins og BNA það er alltaf
öðrum að kenna en ég nenni ekki að skrifa um þetta hér þá verð ég of dónalegur.

Allavega mun ég ekki rita hér meira fyrr en eftir próf og þangað til eru margar vökuklukkustundir.

Að lokum...

Ætli Bangsi verði ''svartur'' um helgina????

Ingimar skítaAri skíttapaði fyrir mér í drykkjuleik um helgina enda er hann bara verkræðingur...

Ragnar Bjarni Jónsson skeit á sig á almannafæri á laugardaginn nasty það já...

Frosti ætti að fara á snúruna...

Gamli ætti að skammast sín ásamt hinum C réttindamönnunum.

Andrés fór út að hlaupa áðan ásamt 2 karlmönnum með 2 pakka af lúbricanti og kom mjög rauður, þrútinn og aumur í rassi á eftir...

Kolbrún Hólm ætti að fara með Frosta á snúruna...

Ég fór á bandið hans Bubba og hljómsveitin er geggjuð en þátturinn sökkar...
Bidda stóð sig vel og Bubbi er búinn að missa það...

Að lokum bið ég að heilsa í bili

Spurning dagsins: Hvað heitir gamli fullu nafni, hvenær er hann fæddur og hvar á hann heima???

í boði fyrir sigurvegarann eru 4 fötur af lúbrikanti...






 



» 8 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 22:59:43 / nokkinn

Það er ekki við eina fjöruna sopið

Jamm og jæja sagði einn góður maður...

Hér úr borg viðskipta og góðæris er lítið að frétta svosem. Hlutabréfavísitölurnar halda áfram að falla ásamt auknum ótta við verðbólgudrauginn en engu að síður er landinn að herða sig í bílakaupum og annari vitleysu, samkvæmt nýjustu tölum hefur hagvöxturinn drifist áfram af einkaneyslu svo það virðist allt vera á vonarvöl.
Það er kannski bara best að forða sér í sveitina og loka fyrir bæði útvarp og sjónvarp.

En að skólanum, þar er allt bilað að gera þessa dagana og páskar verða haldnir í borg verðbólgudraugsins öllum til mikillar ánægju og þó sérstaklega mér. En það er aldrei að vita nema ég láti sjá mig eftir prófin á Héraðinu það mun allt saman koma í ljós þegar sólin fer að hækka á ný.
Nú er svo komið að Bangsalingur er kominn í eldra borgara tölu og óska ég honum til hamingju með það að vera orðinn á launum hjá ríkinu við það að vera gamall en þetta á víst eftir að koma fyrir mig líka bara ekki jafn snemma.

En enn að öðru, síðan ég fór á blót heima  um daginn hafa miklar umræður skapast um það hversu sveitungar mínir séu algerlega forheimskir og froðuvitlausir í því að gera skemmtiatriði, eitthvað virtist söngskráin ásamt gríni gerðu á kostnað Jóa á Giljum og meintu ''Kynferðisafbroti'' hans farið fyrir brjóstið á mörgum, allavega voru pistlar skrifaðir
um hversu fáránleg svona hegðun væri. Ég er svosem ekki maður í það að dæma það, sjáfssagt má segja að Jói minn hafi kannski gerst full fjölþreifinn enda var hann dæmdur fyrir það en þegar fyrirsagnir frétta eru nú orðnar að kynferðisafbrotamaður gerir grín að fórnarlambi sínu þá er fulllangt gengið þykir mér, en steininn tók nú úr þegar stjórnarformaður hins merka rits
Austurgluggans skrifaði opið bréf á vefsvæðinu agl.is, aumingja maðurinn leggst í svo mikla vörn til þess að verja blaðið og þarna hafi réttlætinu verið fullnægt. Þessi ágæti maður virðist vera að kenna sveitungum mínum um það sem miður fór á byrjunarstigi blaðsins þegar enginn vildi gerast áskrifandi að því. Þetta blað er ágætis afþreying og gaman að lesa og vissulega
gott mál að hafa fjórðungsblað en mér þykir nú fréttamennskan (í þessu tilviki)farin að líkjast visir.is ansi mikið þar sem sjaldnast er orð að marka það sem sagt er. Þessi ágæti maður er algerlega búinn að skjóta sig í fótinn og þykir mér það magnað að geta gert sig
að jafn miklu fífli og með þetta.

Ballmenning Egilsstaða er endurvakin mér til mikillar gleði og ánægju.

Ég sé mig líka tilneyddann til að minnast á hana Margréti frænku mína þar sem hún grenjar yfir öllu og segja að hún stóð sig eins og hetja á blótinu en mætti þó fá sér eitthvað að borða.

Einnig ætla ég að minnast á Tómas nokkurn Guðmundsson bekkjarfélaga minn betur þekktur sem ''Gyðingurinn'' fleiri voru þau orð ekki.

Nú Andrés nokkur Gísli Vigdísarson tapar í borðtennis allan daginn alltaf.

Hallfríður veit ekki muninn á smokkum og sleipiefnum

Birgir flemming geir Rafn Ólafsson er að verða faðir, vonum bara að barnið líkist móður sinni.

Sigurður gamli Einar Guðjónsson er bara gamall í hempunni en engu að síður alveg með þetta á þó við ýmis vandamál að stríða.

Eyrún blindfulla Gestsdóttir kann sig ekki í sambandi við áfengi.

Mér finnst líka að Bangsi og Sigfríð ættu að byrja saman.

Nú Hafþór leigusali minn er floginn úr hreiðrinu þessi elska og þá er enginn til að hafa ofan af fyrir mér hér og þá verð ég að setjast við skriftir og þar sem pennahæfileikar mínir hafa nú aldrei þótt með þeim betri þá er best að fara að slá botninn í þetta.

Spurning dagsins: Hvað haldiði að Bangsi hafi eytt í dempara í snjósleðann sinn???

...svo mörg voru þau orð...




» 12 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 21:49:59 / nokkinn

Jíha

Jæja kæru landsmenn nær og fjær...

Nú hripum við einhverja góða speki hér niður á blað til að létta okkur daginn.
Ég fór með loftskipi til egilsstaða síðastliðinn miðvikudag og þar gjörði ég nú ýmsa speki að
vanda. Fór á hinu ýmsu staði til að sýna mitt stórlaglega andlit og fór svo að sjálfssögðu
á blót heima í sveitinni á laugardaginn. Blótið var var hin ágætasta skemmtun og skemmti ég
mér alveg konunglega við það að spjalla við liðið þarna sem var náttúrulega alveg á hliðinni
vegna ofdrykkju. Ég lenti svo aftur hér í borg óttans í gær og skólinn tók við á ný í dag.
Ég er alveg ekki að nenna þessum skóla þessa dagana en það hlýtur nú að lagast með hækkandi sól.
Annars er nú afspyrnulítið að frétta og lítið markvert hefur skeð í mínu lífi þessa dagana nema
kannski það að á hverjum degi opna ég can of a woopass á honum Andrési í borðtennis.
Ég mun því kveðja ykkur að sinni með smá speki...

Óhapp síðustu daga: Bangsi að velta snjósleðanum á sléttu túni...
Fulli maður blótsins: Hallfríður og Svarti Benni...
Fulla kona blótsins: Kolbrún ´´ofurölvi´´ Hólm og Margrét frá skítastöðum...
Bílstjórar blótsins: Klárlega ég og Bangsi...
Maður blótsins: Ragnar ´´söngvari´´ Magnússon og Jói á Giljum...
Söngvari helgarinnar: Sigfríð fyrir að syngja I will always Love you

Spurning dagsins: Mun Hafþóri takast hið ómögulega og kenna mér á gítar????

P.S. Hvaða rugl er með þetta blogg allt í bulli

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 15:58:37 / nokkinn

Áfram Ísland

Handboltinn er mál málanna núna eins og allir ættu að vita, við skitum létt á okkur í gær
og eiga þessir helvítis svíar ekkert gott skilið frá mér eftir að þeir töluðu niður til okkar
manna eftir leikinn. Svíar eiga náttúrulega ekki séns að vinna neitt með þetta skítalið sitt
þeir unnu okkur með 5 mörkum þegar okkar menn spiluðu sinn lélegasta leik í langan tíma.
Svíaliðið getur ekki blautann skít, dómararnir náttúrulega danskir sauðir sem eru sárir út í
íslendinga eftir að við erum búnir að kaupa Danmörku upp og leyfðu svíum að vera í sókn í 5
mínútur trekk í trekk og dæmdu bara eitthvað bull en núna er komið að því að girða sig í brók
reyndar án Óla en maður kemur í manns stað og núna verða Slóvakar og Frakkar teknir í kennslustund.
Einnig vil ég ávíta Íslensku þjóðina fyrir aumingjaskap og heigulshátt það þýðir ekkert að þykjast
vita eitthvað eftir á, allir að drulla yfir Alfreð fyrir að leggja leikinn illa upp og leynivopnið
hafi bara verið rugl. Vil ég minna menn á að Alfreð er búinn að vinna sterkustu deild í heimi og
veit alveg hvað hann er að gera. Íslenskir bloggarar þó sérstaklega moggabloggarar eru ógeð og
almennur viðbjóður sem á ekki skilið að hafa skoðun á þessu og því vil ég beina því til manna að
standa við bakið á stákunum og núna verður flugeldasýning í næstu leikjum. Hefði samt gaman að því ð losna við Garcia sem getur ekkert enda ekki Íslendingur.

 Þakka áheyrnina að sinni og bið ykkur vel að lifa nema fólki sem drullar yfir strákana okkar.

 Later 

 Spurning dagsins: Eruð þið fólk í það að standa með okkar mönnum eða eruð föðurlandssvikarar 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 18:57:31 / nokkinn

Eigum við eitthvað að ræða þetta eða

Nei hélt ekki sko..... Welllllll ég birtist yður og boða fagnaðarerindi hér á þessu bloggi
með alveg splunkunýja færslu á spánýju ári. Ég fór heim á Héraðið þann 17 desember og var það nú góð stund vann síðan öll jólin og fór til borgarinnar stóru á ný að morgni 29 desember þar sem nákvæmlega var ekki neitt að gera heima um jólin þvílík og önnur eins eymd hefur ekki sést eða
heyrst fyrr né síðar. Það er náttúrulega alveg ótrúlegt að ekki skuli vera haldið ball þarna um
jól og áramót og féllust mér allar hendur þegar ég frétti það að eini skemmtistaður bæjarins
myndi loka kl 01:00 á annan í jólum vegna þess að sveitarfélagið er að byggja upp fjölskylduvænt
samfélag ég ætla ekki að básúna neitt um þetta en lýsi þess í stað viðbjóð mínum á þessari
sveitarstjórn.

En að öðru skólinn hófst að nýju í dag með pomp og prakt þar sem fengum bara nýja stofu og ný
borð og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta virðist nú bara ætla að verða þolanleg önn, það er sífellt
að koma í ljós gáfulegir áfangar sem eru nú um eitthvað raunverulegt svo það er bót í máli.

Ég réði mig einnig í vinnu næsta sumar núna um daginn og mun ég verða staðsettur með höfuðstöðvar á Egilsstöðum þó svo ég eigi nú kannski eitthvað eftir að þrusast um landið líka.

En nenni ekki meir í bili og bið ég að heilsa að sinni...

Spurning dagsins: Getur nú einhver giskað á það hvað byssan mín nefnist fullu nafni???

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 21:39:24 / nokkinn

Já fínt já sæll

Daginn hér...

Jæja allt við sama heygarðshornið hér í borg óttans að venju, ég sit í skólanum allan daginn
prófin nýbúin og búinn að fá 4 einkunnir af 5 og rúllaði þessu upp en það síðasta á líklega
eftir að rúlla mér upp en hvað um það er núna í 3 vikna áfanga sem nefnist verkefnisstjórnun
svo ef ykkur vantar stjórnun þá er bara að hringja, þessi áfangi er samt reyndar nokkuð
asnalegur því kennarinn er mjög sígild og góð blanda af of menntuðum manni sem heldur nú
að hann sé nú mestur og bestur en svosem ágætur greyið.

Ég skaust á netið og pantaði mér líka Dragbag í fyrradag jólagjöfin frá mér til mín en þetta
er semsagt poki utan um nýja hólkinn og talandi um hann ég veðjaði við Júdas um daginn um
að ég gæti skotið appelsínu á 600 metra færi með honum en þá hreytti Júdas bara í mig til
baka að ef ég gæti það þá myndi hann hlaupa og ná í leifarnar af appelsínunni ber að neðan
það er alveg á hreinu að hann verður látinn standa við þetta enda hver vill ekki sjá
sjálfan Júdas beran að neðan allavega æsast sumir þegar hann fer að færa sig yfir Fjarðarheiðina.

Heimkomu hefur verið seinkað vegna þess að það þarf að verja andskotans verkefnið á mánudeginum
eftir að áfanganum er lokið algerlega óþolandi rugl svo ég mun ekki stíga á Héraðið fyrr
en síðla mánudagsins 17 desember sem er náttúrulega meira bullið en það verður ekkert
venjulega ljúft að komast í sæluna.

Ég þarf svo að skella mér í ferð í þágu vísindanna í Vst á morgun til að skoða hvort Þeir
séu nú að gera eitthvað af viti og geti kannski boðið mér vinnu í sumar og því gæti ég
verið hér í Reykjavík í sumar.... hahhahahahhahahhaha eða ekki...

Próflokadjammið hjá okkur lenti algerlega í bullinu þar sem nokkrir fóru í fýlu og sumir
voru bara einfaldlega og hreinlega rotaðir en skánuðu engu að síður bara töluvert.

En hef þetta ekki lengra í bili þessi pistill var í boði Perlu sem nennti ekki að klippa
mig í kvöld fari hún bara í fúlan þessi elska... og að lokum það er farin að vera ansi mikil umferð hér á síðunni en engin komment koma svo

Spurning dagsins: Eru menn að fatta brandarann með Júdas og Fjarðarheiðina????


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 22:22:22 / nokkinn

Rúskinn

Jæja eruð þið ekki rúskinn...

Kallinn er allavega andskoti rúskinn hér í borg óttans í miðri prófatíð í HR.
2 prófum er nú lokið það er í Efnisfræði og Jarðtækni og gekk það þrusuvel en málið gæti
farið að vandast núna á þriðjudaginn þegar aftakan í stærðfræði á eftir að eiga sér stað.
Ég hef lengi velt því fyrir mér afhverju í andskotanum það er verið að kenna þessa þvælu
þetta er algerlega óskiljanlegt og svo langt því frá að vera í tengslum við einhvern
raunveruleika að það er alveg með eindæmum t.d. er kennarinn afkvæmi homma og ET.
En allavega 2 búin og 2 eftir síðasta prófið verður nú ekki til vandræða held ég svo þetta
er allt í góðu standi á þeim bænum.

Ég gerði einhver nauðsynlegustu, hagkvæmustu og snjöllustu kaup sem sögur fara af þegar
ég keypti mér riffil hérna um daginn á alveg gjafverði, mig bara bráðvantaði þessa
græju og eftir prófin verður sko farið og prufukeyrt og þar strax á eftir litið ofan
í eina krús eða svo.

Annars eru nú engar stórfréttir aðrar en þær að þessir RVK-búar eru náttúrulega alveg
með þetta að vanda eða þannig en þeir eiga sér víst ekki von frekar en fyrri daginn.

Áætluð heimkoma er laugardaginn 15 desember um kvöldmatarleytið og verður það alveg
yndislegt að komast heim á Héraðið og hafa það gott hjá mömmu.is

En höfum þetta ekki lengra að sinni og bið ég ykkur um að ganga hægt um gleðinnar dyr
ég mun blogga aftur áður en önnin verður að kveldi komin.

Spurning dagsins er: Hafiði séð hund ríða tík???

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 21:13:36 / nokkinn

yes

Tilkynning frá frá hommafélagi Íslands Andrés nokkur Gísli Vigdísarson er nýkjörinn formaður
félagsins eftir harða baráttu frá Júdasi nokkrum vodafone, kosningabaráttan einkenndist af
miklum svallpartýum í skuggahverfum Reykjavíkur og er jafnvel talið að þar hafi verið stundað
óvarið +++líf, er þetta haft eftir kosningastjóra þeirra beggja Sindra Frey sem hefur um
árabil verið talsmaður homma í samfélaginu ásamt því að hafa verið meintur ástmaður þeirra
beggja.

En víkjum nú að öðru ég er nýkominn heim frá Eistalandi þar sem var nú ýmislegt gert til
dundurs og afþreyingar eins og að kíkja á einn krana eða svo og allar heimsins verslanakeðjur
skoðaðar en þær líktust nú einna helst stóru kolaporti.
Nokkrir voru ansi iðnir við að skoða ákveðna staði sem eru kenndir við strippbúllur og
eyddu þar stórfé en það er ágætt ef þeir höfðu gaman að því.

Skólinn er alveg hreint að gera útaf við mig hérna þetta er bara ekki eðlilegt ég hef aldrei
verið í skólanum í heilan sólarhring en þeim árangri náði ég næstum í fyrrinótt og hef ég
ákveðið að setja mig í samband við Amnesty Internatinal til frekari skrafs og ráðagerða.
En við sjáum nú vonandi fram á bjartari tíma í þeim efnum.

Annars er lítið að frétta annað en þessi blessaði skóli og aðeins meiri skóli en ég ætla
að segja staðar numið hér og mun ég rita pistil síðar.

Sælar

Spurning dagsins er ''frá hvaða eyju á Breiðafirði kemur hinn nýkjörni formaður hommafélags Íslands?

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 19:43:12 / nokkinn

ammammamm

Jæjaaaaaaaaaaaa

Nú skulum við setjast niður hér í sameiningu og skoða það sem drifið hefur á daga okkar
undanfarna daga og vikur. Ýmislegt hefur nú svosem skeð síðan síðast, ég er búinn að
skella mér í Norðurlandið og vinna þar eina helgi svo að Júdas hringskíti nú ekki á sig eins
og hann er landsþekktur fyrir.
Skólaviðbjóðurinn er nú samur við sig að vanda með óþolandi leiðindaverkefnum og skiladæmum
ekki nokkur friður til þess að dingla sér.
En síðastliðinn föstudag fór ég nú heldur betur í vísindaferð og það var nú ekki ónýtt
skellti mér nú ekki á ómerkari stað en Kraftvélar til þess að kynna mér Komatsu og Topcon og
þið sem ekki vitið hvað það er þá er það bara ykkar vandamál en allavega var þetta klárlega
vísindaferð ársins ef ekki bara áratugarins, svo var farið í bæinn og einhverjir kranar
skoðaðir án teljandi árangurs, þó má nefna það að nú er bannað að míga í Rvk utandyra og
kostar það bara morðfjár.
Ég er svo að skella mér til Tallinn í Eistlandi núna á miðvikudaginn þar sem ég mun ásamt
misjafnlega fríðu föruneyti rokka kofann í klessu og munu eistar fá að finna fyrir því
og þeim kenndir hinir ótrúlegustu siðir og ósiðir.

En nenni ekki meir núna kem með sleggju von bráðar

Spurning dagsins er hvað heitir móðursystir mín????

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 10:51:53 / nokkinn

Back to live

Jæja krakkar mínir komiði sæl

Þá er sumarvinnuvertíðin að kveldi komin sem er afskaplega óskemmtilegt að mínu mati þar
sem ég var ekki alveg búinn að massa verkið í norðurlandinu við verðum bara að vona
að Júdas reddi þessu þó hann sé náttúrulega algerlega óhæfur í það.
Ég er nú sestur á skólabekk á ný hér í borg óttans með öllum þessum leiðindatímum og
verkefnum endalausum. En nú ætla ég að sjá hvort menn kommenti eitthvað hér svo ég sjái
hvort að það sé einhver að lesa þetta annars nenni ég þessu ekki....

Sæl að sinni........

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 22:48:07 / nokkinn

ammamm

Pistlaskrif væntanlega þau síðustu á þessari líðandi önn.
Jæja þá er nú farið að sjá fyrir endann á þessu fyrsta ári mínu í Háskóla hver gat
nú átt von á því að ég færi í Háskóla en lengi kemur maður sjálfum sér og öðrum á óvart.
Þessi 3 vikna áfangi er nú loks að verða að kveldi kominn get nú ekki annað sagt en loksins
því þessi ósköp eru náttúrulega ekki nokkrum manni bjóðandi þvílík leiðindi.
Nú er farið að sjá fram á bjartari tíma og sumarið farið að láta kræla á sér og heimferð er
staðfest næstkomandi laugardag klukkan fimmtánhundruð, þvílík dýrð sem það nú verður mín kæru.
Það passar fínt að geta karpað við gamla um stjórnmálin þegar í hlað verður komið, ég er
alveg eins og 5 ára strákur að bíða eftir því að mega opnað afmælisgjöfina sína með að komast
heim. Ég sé fram á frekar annasamt sumar bæði til að rétta fjárhaginn við ásamt öðrum skyldustörfum
eins og að fara í sveitina. Áætlað er að ég eyði stórum hluta sumars í einangrun norður
í landi við að snýta fram úr erminni einu stykki af klassa vegi sem verður nú ekki ónýtt.
Skólinn mun svo hefjast á ný þann 20 ágúst svo ekki veitir af en að halda sig að verki við að
hala inn peninga. En það er nákvæmlega ekkert að frétta af mér og ég nenni ekki að gera
einhverja sleggju hér get bara ekki beðið eftir því að komast héðan úr þessu andskotans
helvítis viðbjóðurs helvítishelvíti sem suðurland og vesturland ná að töfra hér fram en
ég bið að heilsa ykkur fram á haustið ég reikna ekki með neinum skriftum í sumar svo þangað
til næst skemmtiði ykkur vel í sumar og gangið hægt um gleðinnar dyr og geriði ekkert
sem ég myndi ekki gera...

Þangað til næst Héraðið best í heimi :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 24033